Deila

Er þitt fyrirtæki til fyrirmyndar í rekstri?

Keldan í samstarfi við Viðskiptablaðið tekur saman lista á hverju rekstrarári yfir þau fyrirtæki sem teljast til fyrirmyndar í rekstri. Uppfylla þarf eftirfarandi skilyrði til að falla í þennan eftirsóknaverða hóp fyrirtækja.

Rekstrarárin 2023 og 2022 liggja til grundvallar en tekið er tillit til rekstrarársins 2021. Þá eru aðrir þættir einnig metnir af Keldunni og Viðskiptablaðinu, til að mynda skil á ársreikningi og rekstrarform.

  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 45 milljónir króna.
  • Eignir þurfa að hafa verið umfram 80 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.

Á vefsíðu Keldunnar undir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri er að finna leitarvél þar sem hægt er að fletta upp með kennitölu fyrirtækis hvort það sé á listanum yfir fyrirmyndarfyrirtæki árið 2024.

Jafnframt má panta vottun fyrir þitt fyrirtæki ef það uppfyllir ofangreind skilyrði.

Meðal þess sem í boði er fyrir fyrirtæki sem eru á listanum:

  • Viðurkenningarskjal á íslensku og ensku.
  • Leyfi til að nota merkið í kynningarefni.
  • Heildarlisti yfir fyrirmyndarfyrirtæki 2024 og lykiltölur.

Lykiltölur hafa verið slegnar inn úr 32.264 ársreikningum fyrirtækja fyrir rekstarárið 2023, og þær gerðar aðgengilegar áskrifendum Keldunnar. Fyrirtæki og einstaklingar geta þannig fengið aðgang að víðtækum og ítarlegum fjárhagsupplýsingum um fyrirtæki til að taka upplýstar ákvarðanir.

Deila