Deila

1.643 íslensk fyrirtæki eru til fyrirmyndar

Blaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri sem Keldan og Viðskiptablaðið gefa út árlega til heiðurs fyrirtækjum með sterkan rekstur er komið út! Í blaðinu er að finna áhugaverð viðtöl, greiningar, fróðlegt talnaefni, og að sjálfsögðu lista yfir öll fyrirmyndarfyrirtæki 2024.

Fyrirtæki sem uppfylla skilyrðin í ár telja 1.643, en voru 1.445 talsins í fyrra.

Á vefsíðu Keldunnar undir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri er að finna leitarvél þar sem hægt er að fletta upp fyrirtækjum eftir kennitölu hvort þau eru á listanum í ár. Þá er enn hægt að panta vottun fyrir þitt fyrirtæki ef það uppfyllir neðangreind skilyrði.

Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði:

  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2023 og 2022 en rekstrarárið 2021 er einnig notað til viðmiðunar.
  • Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2023 og 2022.
  • Tekjur fyrirtækja þurfa að hafa verið umfram 45 milljónir króna á rekstrarárinu 2023 og umfram 40 milljónir árið 2022.
  • Eignir fyrirtækja þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2023 og 2022.
  • Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.
  • Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Blaðið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fylgir Viðskiptablaðinu. Blaðið er opið öllum og hægt er að skoða það hér.

Deila