Keldan: kaup- og leigusamningar uppfærðir daglega
Á vef Keldunnar er hægt að skoða alla þá kaupsamninga og leigusamninga sem þinglýstir hafa verið, og eru þeir nú uppfærðir daglega í stað mánaðarlega eins og áður var.
Allir hafa aðgang að upplýsingum úr þinglýstum kaup- og leigusamningum á Keldunni, en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun miðlar þeim úr kaupskrá. Hægt að leita eftir heimilisfangi fasteigna, hvort sem um ræðir íbúðarhúsnæði, sumarhús eða atvinnuhúsnæði.
Meðal þeirra upplýsinga sem aðgengilegar eru má nefna síðasta kaupverð, sem vel getur nýst þeim sem eru í fasteigna hugleiðingum og vilja fá tilfinningu fyrir markaðnum. Einnig má leita eftir nýlegum kaupsamningum á sambærilegum eignum sem viðmið í því samhengi.
Þá geta þeir sem eru í áskrift keypt PDF útgáfu af þinglýstum kaup- og leigusamningum. Óska þarf sérstaklega eftir aðgangi og er hægt að hafa samband við þjónustuborð Keldunnar til þess. Áskrifandi [og notendur hans] skulu staðfesta sérstaklega að aðgangur að þinglýstum skjölum sé nauðsynlegur starfs hans vegna og færa skal rök fyrir því.