Heildstæð viðskiptalausn fyrir verðbréfafyrirtæki.
Fullkomin yfirsýn yfir öll viðskipti á einum stað
KODIAK Oms er heildstætt viðskiptakerfi fyrir fjármálafyrirtæki sem vilja eiga viðskipti í norrænum kauphöllum. Með KODIAK Oms hefur þú fullkomna yfirsýn yfir allar pantanir og sölur í rauntíma á einum stað.
Markaðsupplýsingar í rauntíma
Með KODIAK Oms hafa notendur greiðan aðgang að öllum helstu markaðsupplýsingum frá Nasdaq OMX kauphöllinni í rauntíma. Í kerfinu er meðal annars hægt að skilgreina vöktunarlista og fá upplýsingar um viðskipti um leið og þau gerast.
Allt ferli pantana í einni pantanabók
KODIAK Oms gerir framlínufólki og miðlurum kleift að halda utan um pantanir og afgreiðslur þeirra í einni pantanabók. Það sparar tíma og fækkar villum að þurfa ekki að nota aðskilin kerfi til að móttaka og framkvæma pantanir fyrir viðskiptavini.
Fullkominn rekjanleiki
Með KODIAK Oms er einfalt að leita nákvæmlega í gegnum pantanasögu viðskiptavinar, allt frá móttöku pöntunar til frágangs í bakvinnslu. Slíkur rekjanleiki er mikilvægur ef álitamál koma upp varðandi framkvæmd viðskipta.
Tengingar við önnur kerfi
Með API tengingum getur KODIAK Oms tekið við pöntunum úr öðrum kerfum eins og sölukerfum sjóða. Einnig getur kerfið tengst bakvinnslu- og viðskiptamannakerfum, MiFID II og eftirlitskerfi Nasdaq.
Fjármálafyrirtæki geta einnig tengt netbanka og applausnir við markaðinn í gegnum API tengingu.
FIX tengingar við markaði eða fjármálafyrirtæki
KODIAK Oms getur tengst við hvaða kauphöll og verðbréfakerfi sem er með FIX tengingum. Það er smá vinna að tengjast nýjum aðilum – en Kóði hefur nokkra reynslu af því.
Hlítni við MiFID II og MiFIR
Viðskiptin í gegnum KODIAK Oms tryggir hlítni við kröfur sem gerðar eru til verðbréfaviðskipta samkvæmt MiFID og MiFIR regluverkunum.
Öruggur uppitími þegar mest á reynir
Þegar mikið liggur við og viðskipti þurfa að ganga hratt í gegn skiptir uppitími kerfisins mjög miklu máli. KODIAK Oms er að hluta vistað í skýjaumhverfi sem tryggir hnökralausa á virkni þegar mest ríður á og hlutirnir mega ekki klikka.
Helstu kostir KODIAK Oms:
- Öll viðskipti og pantanir í rauntíma á einum stað, í einni pantanabók.
- Betri ákvarðanir með rauntíma markaðsupplýsingum og frá Nasdaq OMX kauphöllinni.
- Fullkominn rekjanleiki viðskipta frá móttöku pantana til afgreiðslu í bakvinnslukerfum.
- Stöðugur uppitími tryggður með skýjarekstri.
- Sveigjanlegt og einfalt viðmót sem hægt er aðlaga að eigin þörfum.
KODIAK Oms er háþróað viðskiptakerfi fyrir sölufólk og miðlara sem er í stöðugri þróun og endurskoðun í takt við breytingar í viðskipta- og lagaumhverfi.
Fyrir hvern er KODIAK Oms?
Fyrir viðskiptavaka, verðbréfamiðlara, starfsmenn í eignastýringu, bakvinnslu og regluvörslu, og framlínustarfsmenn.
Viltu vita meira um KODIAK Oms?
Hafðu samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt kynna þér kerfið betur.
Hafðu sambandNotendaþjónusta og handbækur
NotendahandbókHelstu eiginleikar KODIAK Oms
Fáðu upplýsingar um nýjustu viðskipti í Nasdaq OMX um leið og þau gerast .
Til að tryggja hámarks uppitíma og lágmarks viðhald er KODIAK Oms að hluta hýst í skýinu.
API tenging veitir aðgengi að öðrum kerfum; bakvinnslukerfi viðskiptamannakerfi, sölukerfi sjóða, MiFID II og eftirlitskerfi Nasdaq.
Fáðu upplýsingar um opinbert dagslokaverð í Kauphöll Íslands með einfaldri leit.
Nasdaq INET, Nasdaq Genium INET, APA, Bloomberg, NYFIX, Market Axxess, KODIAK DMA og sérsniðnar FIX tengingar.
Fjármálafyrirtæki geta tengt netbanka og öpp við kauphöll.
Sérsniðnar aðgerðir fyrir viðskiptavaka til að halda úti viðskiptavakt og setja fram kaup- og sölutilboð í félög á markaði.
Algjör rekjanleiki pöntunar; frá því hún berst miðlara, til þess að hún leiðir til viðskipta á markaði og er úthlutað á verðbréfasafn viðskiptavinar.
Kerfið getur haldið utan um pantanir starfsmanna. Starfsmenn senda beiðni til regluvörslu um að fá leyfi fyrir viðskiptum. Eftir að leyfi er veitt er hægt að senda pantanir úr vefviðmóti beint til miðlara.
Hafðu samband
Ertu með spurningu eða viltu nánari upplýsingar um KODIAK Oms? Sérfræðingar Kóða taka vel á móti öllum fyrirspurnum.
Athugið að nauðsynlegt er að fylla út stjörnumerkta reiti.
Fleiri spennandi lausnir
-
KODIAK MiFID II
MiFID 2.0
Mat á hæfi og tilhlýðileika viðskiptavina með KODIAK MiFID II.
skoða nánar -
KODIAK Dma
Beinn markaðsaðgangur
Með KODIAK Dma tengist KODIAK Pro við Kauphöll.
skoða nánar -
KODIAK Pro
Markaðsgögn fyrir Windows
Fáðu rauntíma markaðsgögn frá Nasdaq OMX, söguleg verð, gröf, yfirlit yfir sjóði, gjaldmiðla og margt fleira.
skoða nánar -
KODIAK Sigti
Eftirlit með verðbréfaviðskiptum
Markaðsvöktun og eftirlit með viðskiptum.
skoða nánar