Deila

Kóði og Defend Iceland í samstarf um netöryggi

Kóði hefur gengið til samstarfs við netöryggisfyrirtækið Defend Iceland um aðgang að villuveiðihugbúnaði þess til að styrkja varnir net- og tölvukerfa Kóða gegn árásum.

Í tilkynningu frá því í sumar kemur fram að með innleiðingu hugbúnaðarins muni Kóði nýta öflugri öryggistækni til að auka viðnámsþrótt net- og tölvukerfa sinna, sem mun stuðla að auknu öryggi gagna viðskiptavina.

„Kóði leggur mikla áherslu á öryggismál í sinni starfsemi. Öll fjármálafyrirtæki landsins nota hugbúnaðarlausnir frá okkur og þúsundir fyrirtækja treysta á lausnir eins og Keldan.is og Hluthafaskra.is. Við hlökkum til að vinna með Defend Iceland og auka öryggi enn frekar í stafrænum heimi“ segir Thor Thors, framkvæmdastjóri Kóða

Defend Iceland hefur það markmið að skapa öruggara stafrænt samfélag. Fyrirtækið leggur áherslu á að aukin vitund um öryggisveikleika í kerfum fyrirtækja og stofnana sé lykilatriði til að ná þessu markmiði, sérstaklega í ljósi aukinna netárása frá skipulögðum glæpahópum.

„Stór hluti fjármálakerfisins er nú þegar kominn í viðskipti við Defend Iceland og það er okkur því sérstakt ánægjuefni að Kóði, leiðandi aðili í þjónustu við fjármálafyrirtæki, noti nýjustu tækni í baráttunni við netárásir“ segir Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, stjórnandi viðskiptaþróunar-, sölu- og markaðsmála Defend Iceland.

Deila