Náðu hámarksárangri með greiningu markaðsgagna í Microsoft Excel með KODIAK Excel viðbótinni.

Einfaldaðu greiningarvinnuna

Dragðu lifandi markaðsgögn beint inn í Excel

Eitt helsta vinnutæki sérfræðinga á fjármálamarkaði er Microsoft Excel. Það er mikilvægt að geta nýtt eiginleika Excel til að vinna hratt og örugglega úr markaðsgögnum.

KODIAK Excel er viðbót við Microsoft Excel sem gerir þér kleift að beintengja með nokkrum smellum allar mikilvægustu markaðsupplýsingar í rauntíma yfir í Excel skjölin þín.

Auk fjölmargra gagnapakka Kóða geturðu tengt gagnastreymi úr þínum eigin kerfum, svo sem bókhaldskerfum, með Genius hugbúnaðinum.

 

Helstu kostir KODIAK Excel
  • Einfaldur aðgangur allra gagnapakka sem Kóði safnar.
  • Öll fjárhagsgögn á einum stað með tengingu gagnastrauma úr eigin kerfum með GENIUS Server.
  • Mismunandi áskriftir í boði fyrir ólíkar þarfir:
  • Fjármálaþjónustur: Markaðsgögn frá Nasdaq OMX Nordic, skuldabréf, gjaldmiðlar, reiknivélar og fleira.
  • Questor: Fjárhagsupplýsingar skráðra félaga.
  • Financials: Fjárhagsupplýsingar skráðra og óskráðra félaga.

 

Sjá lista yfir gögn í KODIAK Excel og berðu saman vörur í flokki markaðsgagna og greiningartóla.

Einnig er hér að finna upplýsingar um allar þjónustur í KODIAK Excel.

 

Fyrir hverja er KODIAK Excel?

KODIAK Excel er ætlað öllum þeim sem nýta Excel til að greina markaðsupplýsingar á fjármálamarkaði, svo sem sérfræðingum fjármálafyrirtækja, tryggingafélaga og verðbréfasjóða.

KODIAK Excel er nauðsynleg lausn fyrir sérhvern sérfræðing sem vinnur með markaðsgögn frá norrænum mörkuðum í Excel.

Prófaðu frítt í 2 vikur

Sæktu nýjustu útgáfu af KODIAK Excel og hafðu samband til að fá frían prufuaðgang í 2 vikur áður en þú ákveður að koma í áskrift.

Prófaðu frítt

Fjölbreyttir gagnapakkar í KODIAK Excel

Hlutabréf

Tenging við Nasdaq OMX Nordic veitir meðal annars upplýsingar um hlutabréfavísitölur, söguleg og rauntímaviðskipti, samantekt á viðskiptum og dagslokaverð.

Skuldabréf

Fáðu öll nauðsynleg gögn til að halda utan um skuldabréfasafnið, svo sem föll og runur fyrir vísitölur, útreikning á ávöxtunarkröfu, aðgang að rauntímaviðskiptum í OMX Nordic Exchange og margt fleira.

Gjaldmiðlar og vextir

Sæktu gengi, gjaldmiðlakrossa og vexti frá Seðlabanka Íslands og öðrum birgjum.

Reiknivélar

Reiknaðu lánið til enda; greiðsluflæði, heildarafborganir, verðtryggingu og hlutfallstölu kostnaðar. Reiknaðu einnig verð á valréttum hlutabréfa og ávöxtunarkröfu, núvirði og binditíma skuldabréfa.

Íslenskar gagnaveitur

Greining gagna frá ýmsum gagnaveitum meðal annars frá Seðlabanka Íslands, Hagstofunni, Verðbréfaskráningu Íslands og Rannsóknasetri verslunarinnar.

Vísitölur og verðbréfasjóðir

Fylgstu með hluta- og skuldabréfavísitölum Nasdaq sem og gengi verðbréfasjóða hjá íslenskum rekstrarfélögum.

Fjárhagsupplýsingar úr ársreikningum

Fjárhagsupplýsingar hjá skráðum og óskráðum fyrirtækjum á Íslandi.

KODIAK Excel áskriftarleiðir

Fjármálaþjónustur*

29.900 kr. á mánuði + vsk.

Meðfylgjandi gagnapakkar

  • NASDAQ OMX Nordic
  • Skuldabréf
  • Gjaldmiðlar (FX)
  • Íslenskar gagnaveitur (Hagstofan, sjóðir, verðbréfaskráning)
  • Ýmis reikniverk
  • Stuðningsþjónustur
Questor

19.350 kr. á mánuði + vsk.

Meðfylgjandi gagnapakkar

  • Skráð félög fjárhagsupplýsingar
  • Stuðningsþjónustur
Financials

46.900 kr. á mánuði + vsk.

Meðfylgjandi gagnapakkar

  • Skráð félög fjárhagsupplýsingar
  • Óskráð félög fjárhagsupplýsingar
  • Stuðningsþjónustur
* Til að nýta sér áskriftarleiðina "Fjármálaþjónustur" þarf notandi að vera með áskrift að markaðsgögnum hjá Nasdaq OMX.

Hafðu samband

Ertu með spurningu eða viltu nánari upplýsingar um KODIAK Excel? Sérfræðingar Kóða taka vel á móti öllum fyrirspurnum.

Athugið að nauðsynlegt er að fylla út stjörnumerkta reiti.

This field is for validation purposes and should be left unchanged.

Fleiri spennandi lausnir

  • KODIAK Pro

    Markaðsgögn fyrir Windows

    Fáðu rauntíma markaðsgögn frá Nasdaq OMX, söguleg verð, gröf, yfirlit yfir sjóði, gjaldmiðla og margt fleira.

    skoða nánar
  • Gagnatorg API

    Markaðsgögn í vefþjónustur

    Sæktu markaðsgögn ásamt að geta tengt eigin hugbúnaðarlausnir við Gagnatorgs API.

    skoða nánar
  • Keldan

    Upplýsingaveita atvinnulífsins

    Keldan veitir aðgang að öllum helstu skrám sem reknar eru af opinberum aðilum á Íslandi.

    skoða nánar
  • Keldan markaðir

    Markaðsgögn fyrir Android og IOS

    Fylgstu með gengi hlutabréfa, gjaldmiðla og viðskiptafrétta í rauntíma.

    skoða nánar